Leyfum strákum að sjá og tjá tilfinningar

Verkefni

Endurmörkun
Myndlýsingar
Auglýsingar
Sniðmát

Stúdíó Bergþóra Jóns

2020-22

Karlmennskan

Karlmennskan er verkefni Þorsteins V. Einarssonar, kennara og kynjafræðings. Markmið þess er að varpa ljósi á íhaldssamar ráðandi karlmennskuhugmyndir, hreyfa við þeim, skapa jákvæðri karlmennsku frekari sess og styðja í leiðinni við jafnrétti í íslensku samfélagi.

Hannað var samræmt útlit; litapalletta, letur, íkon og merkið, teiknað af Einari Guðmundssyni, uppfært lítillega. Leiðarljósið var mýkt, kvenlegur undirtónn og útlit sem í raun endurspeglar andstæðu steríótýpískra karlmennskuímynda. Einnig var útbúið RISA-sett af sniðmátum fyrir Þorstein til að setja sjálfur saman efni í Canva fyrir samfélagsmiðla.

Verkefnið var sérstaklega skemmtilegt þar sem að á þessum tíma var ekki mikið um samræmt útlit á samfélagsmiðlum hjá verkefnum og samtökum og Karlmennskan því í fararbroddi fyrir Canva-bylgjuna.

Auk endurmörkunar voru líka útfærðar tvær auglýsingaherferðir þar sem Karlmennskan tók höndum saman við Stígamót, UN Women á Íslandi, Píeta-samtökin og kynjafræðina í HÍ um að vekja athygli á jákvæðri karlmennsku. Átaksverkefnið var fjármagnað af jafnréttissjóði Íslands og auglýsingar voru birtar á vef, í strætóskýlum og öðrum vel völdum stöðum í Reykjavík.