Samtök um skaðaminnkun og mannréttindi fólks sem notar vímuefni

Verkefni

Mörkun
Myndlýsingar
Vefhönnun
Auglýsingar
Sniðmát

Stúdíó Bergþóra Jóns

2023

Matthildur — samtök um skaðaminnkun

Markmið Matthildarsamtakanna er að öll sem nota vímuefni hafi aðgang að gagnreyndri skaðaminnkandi þjónustu og stuðningi, til að tryggja öryggi sitt og heilbrigði. Samtökin standa vörð um mannréttindi fólks sem notar vímuefni og berjast fyrir breyttri vímuefnastefnu sem byggir á lýðheilsu, vísindalegum rannsóknum og mannréttindum.

Ásýnd samtakanna þarf því að höfða til notenda, vera hlýleg og mannleg en á sama tíma ákveðin og stöndug.

Merkið stendur fyrir vöxt og umhyggju, skaðaminnkun sem birtist í merkinu sjálfu ásamt földu m-i. Litirnir eru skærir og eftirtektarverðir þar sem mestur fókus er á stafræna birtingu. Bleiki liturinn er svo áberandi þar sem hann er uppáhaldslitur Matthildar Jónsdóttur Kelley, baráttukonunnar sem samtökin eru nefnd eftir.