Vinalegasti veitingastaðurinn

Verkefni

Endurmörkun
Myndlýsingar
Vefhönnun
Sniðmát

House9 Design

2018

McKiernan

Algjör súpergrúppustaður í Montréal, rekinn af fólkinu á bakvið vinsælu veitingastaðina Maison Publique, Joe Beef og Liverpool House. Náttúruvín, borðtennis, foosball og frábær matur frá morgni til kvölds í björtu og opnu rými sem minnir helst á berlínska bjórgarða.

Staðurinn hafði áður átt heima við hlið Joe Beef en sá staður varð svo vinsæll að hann yfirtók allt rýmið. Þegar þetta nýja rými datt svo upp í hendurnar á eigendum staðarins kom upp sú hugmynd að endurvekja McKiernan, og gefa úlfinum og ásýndinni allri andlitslyftingu í leiðinni.

Verkefnið var unnið hjá House9 Design með Farah Khan og teikningar unnar í samvinnu við Justin Karas. Ljósmyndir eru eftir Huge Galdones og Alison Slattery.

A.m.k. einn starfsmaður og einn eigendanna eru búnir að láta húðflúra á sig úlfinn. Ég myndi biðja um mynd en síðast þegar ég bað um að fá að sjá endaði það með því að annar þeirra stóð á brókinni inni á miðjum veitingastað.