Konur af ólíkum bakgrunni og barátta þeirra til jafnréttis
Systralag II
Sýningin er sjálfstætt framhald sýningarinnar Systralags I og upphefur konur af ólíkum bakgrunni og baráttu þeirra til jafnréttis. Hvert og eitt verk vísar í ákveðna baráttukonu eða hóp kvenna og hugsjónir þeirra.
Sýningin, sem styrkt var af Menningarsjóði Dalvíkurbyggðar, var fyrst opnuð á Dalvík í desember 2020 og var svo einnig sýnd á Hönnunarmars í Reykjavík í maí 2021.
Sýningin var einnig sölusýning og seldist fjöldinn allur af plakötum og tauverkum í ýmsum stærðum þar sem hluti ágóða sölunnar rann til Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
Sýningin var tilnefnd til FÍT-verðlauna 2021.
Verkefni
Myndlýsingar
Sýningarhönnun
Stúdíó Bergþóra Jóns
2020–2021
Samþykktu aldrei „Vegna þess að þú ert kona“ sem ástæðu þess að grípa til aðgerða eða aðgerðaleysis.
Chimamanda Ngozi Adichie, nígerískur rithöfundur
Það þýðir ekkert að berjast fyrir jafnrétti ef allir fá síðan ekki að vera með.
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, fötlunaraktívisti
Ekki fleiri stolnar systur.
Samtök um týndar og myrtar frumbyggjakonur í Kanada og Bandaríkjunum
Við erum ekki það sem aðrir segja okkur vera. Við erum það sem við finnum í okkur sjálfum og það sem við elskum.
Laverne Cox, transkona og leikkona
Við uppgötvum mikilvægi radda okkar þegar við erum þvinguð til þagnar.
Malala Yousafzahi, Nóbelsverðlaunahafi
Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, á kosningafundi árið 1980 aðspurð hvort það myndi há henni í embætti að vera aðeins með eitt brjóst.
Ég óska konum þess ekki að hafa völd yfir karlmönnum, heldur yfir sér sjálfum.
Mary Wollstonecraft, rithöfundur og heimspekingur
Hún safnaði saman brotunum af mér og gaf mér þau öll aftur í réttri röð.
Toni Morrisson, rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi
Upphefjum á meðan við klífum.
Þjóðarsamtök svartra kvenna í Bandaríkjunum
Ég er hætt að samþykkja hluti sem ég get ekki breytt. Ég er farin að breyta þeim hlutum sem ég get ekki samþykkt.
Angela Davis, aktívisti, heimspekingur og rithöfundur