Ungir leiðtogar til fjölbreyttari framtíðar

Verkefni

Mörkun
Prenthönnun
Vefhönnun
Auglýsingar
Sniðmát

House9 Design

2018

TeenSHARP

TeenSHARP voru stofnuð sem grasrótarsamtök í Bandaríkjunum 2009 en teygja sig núna þvert yfir landið. Markmið þeirra er m.a. að greiða aðgengi svartra nemenda ásamt nemenda frá Rómönsku Ameríku og tekjulágra að tækifærum í frumkvöðlaumhverfinu, þjálfa þá til að verða sendiherrar háskólanáms í þeirra nærumhverfi og undirbúa þá fyrir nám í virtum skólum á framhalds- og háskólastigi.

Framtíðarsýn TeenSHARP er sú að einn daginn muni fjölbreytileiki samfélagsins alls endurspeglast í leiðtoga- og stjórnunarstöðum hvarvetna.

Ótrúlega mikilvægt verkefni sem þurfti að endurspegla í útliti og efni. Unnið hjá House9 Design í Montréal með Farah Khan og Maxime LeFrancois.