Framtíðarsýn í amerísku skólakerfi

50 CAN Vision Guides

50CAN eru óhagnaðardrifin samtök leiðtoga á sveitastjórnarstigi í Bandaríkjunum sem berjast fyrir hágæðamenntun fyrir öll börn, sama hvernig fjárhagslegur bakgrunnur þeirra er.

Hvert og eitt fylkisteymi innan samtakanna útfærði framtíðarsýn sína varðandi menntun í opinbera skólakerfinu. Þau horfðu til árangurs og framfara síðasta áratugarins og töluðu við hundruð nemenda, kennara, foreldra og borgara sem láta sig málið varða. Úr varð sería af litríkum leiðarvísum (e. „Vision Guides) um framtíð menntunar. Leiðarvísarnir innihalda m.a. kort sem sýna þá menntunarkosti sem nemendur ættu að hafa frá fæðingu þar til þau útskrifast, leiðarstjörnur og gildi, framtíðarsýn og mælikvarða á árangur.

Þetta stórskemmtilega verkefni var unnið í góðri samvinnu bæði innan House9 Design og við 50CAN sem lýstu útkomunni sem „stórkostlegu safni stefnusýna sem kynntar eru á einstakan hátt: sem ferða-leiðarvísar um framtíð menntunar.“

Verkefni

Hugmyndavinna
Umbrot

House9 Design

2018