Uppáhalds sósuumbúðir Jamie Oliver

Verkefni

Umbúðahönnun
Myndlýsingar

House9 Design

2018

Maison Publique

Veitingastaðurinn Maison Publique (e. „Public House“) í Montréal var rekinn frá 2012–2019 og var valinn sá 13. besti í Kanada árið 2018. Eigandinn og yfirkokkurinn Derek Dammann (einn eigenda McKiernan) fékk Jamie Oliver með sér í lið til að opna staðinn í hjarta aðal frönskumælandi hverfis borgarinnar.

Útlitið á staðnum var eins og á hefðbundnum breskum pöbb með veggfóðri frá Viktoríutímanum, klæddur kanadískum panel. Bakherbergið var svo eitt sinn hesthús eða þar til Heimssýningin var haldin í Montréal 1967 og borgarstjórinn á þeim tíma bannaði húsdýrahald í þéttbýli.

Mynstrið á veggjunum og væbið á staðnum voru mikill innblástur við gerð umbúðanna, sem voru unnar í samstarfi við Farah Khan á House9 Design. Unnar voru þrjár mismunandi útgáfur þar sem hver sósa fékk sinn lit sem tónaði við gyllinguna í mynsturteikningunni. Teikningin af hananum kemur svo frá skiltamálaranum frábæra Pierre Tardif.

Ljósmyndir koma frá Maison Publique og vefversluninni Brunette (sem því miður hefur líka lagt upp laupana).